15. mars, 2019 - 14:20
Við förum yfir poppkúltúrfréttir vikunnar í þessum glænýja þætti: 101 Fréttir.
Þátturinn stiklar á stóru og segir frá því helsta sem bar á í poppkúltúrumfjöllun Útvarps 101 í vikunni. Í þessum þætti ræðum við Íslensku tónlistarverðlaunin, sjálfsfróun kvenna og fleira skemmtilegt. Þátturinn er vikulegur og er dagskrárgerð í höndum Loga Pedro og Birnu Maríu.
Logi Pedro kemur fram í fötum frá Urban.
101 Fréttir er unnin í samstarfi við Urban í Kringlunni.
10. október - 11:00
101 Productions er framleiðslufyrirtæki sem einnig rekur útvarpsstöðina Útvarp 101. Ert þú með hugmynd? Sendu okkur línu á idea@101.live.
27. janúar - 10:30
Í nýjasta þætti Heimsenda ræðir Stefán Þór við hagfræðinginn Ólaf Kjaran Árnason um kapítalisma.
24. janúar - 13:00
Eruð þér límd við skjáinn? Er símtækið besti vinur þinn? Í nýjasta þætti Heimsenda er rætt um sítengingu og skilgreiningu hennar.
24. janúar - 12:30
Í hlaðvarpinu „Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið“ velta Annalísa Hermannsdóttir og Björk Guðmundsdóttir fyrir sér hegðun og hugarstarfi fullorðins fólks á heimspekilegan, sálfræðilegan en þó óvísindalegan hátt.
19. janúar - 14:40
Þáttastjórnendur Einhleyp, einmana og eirðarlaus eru mætt aftur í stúdíóið að jólafríi loknu.
17. janúar - 14:30
„Þetta er bara hreint og beint svefnherbergisdjamm, hoppandi á rúminu og syngjandi í hárburstann“ segir tónlistarkonan Salóme Katrín um lagið „The Other Side“ sem hún sendi frá sér í vikunni.