11. júlí, 2019 - 11:10
Kvikmyndapersónur eru allskonar og mismunandi líkt og þær eru margar. Ein starfsstétt hefur átt sérstakan stað í kvikmyndasögunni og oftar en ekki hentar þeirra hlutverk vel til flókinnar persónusköpunar, við erum að sjálfsögðu að tala um leigubílstjóra.
Nú er komið að því að kynnast næsta leigubílstjóra en í dag er frumsýning gamanmyndarinnar Stuber í íslenskum kvikmyndahúsum þar sem Kumail Nanjiani leikur Uber-bílstjórann Stu. Stu er hæglátur, vandvirkur og sérlega umhugað um að halda í hina ómetanlegu 5-stjörnu einkunn. Stu vinnur í íþróttavöruverslun en á sér draum um að opna líkamsræktarstöð til að ganga í augun á draumadísinni.
Líf Stu tekur hinsvegar mikinn snúning þegar hann kynnist harðjaxlinum Vic(Dave Bautista) sem dregur hann inn í atburðarás sem hann hefur enga stjórn á.
Í tilefni þessa tókum við saman nokkra af eftirminnilegustu leigubílstjórum kvikmyndasögunnar, ljóst er að margir eiga sér væntanlega sinn uppáhalds.
Travis Bickle - Taxi Driver
Í sálfræðitrylli Martin Scorsese frá árinu 1976 leikur Robert De Niro hinn 26 ára Travis Bickle. Sem fyrrum hermaður í bandaríska sjóhernum og Víetnam-stríðinu tekur hann að sér starf leigubílstjóra til að glíma við eigin einmanaleika, svefnleysi og þunglyndi. Hann eyðir því nóttum sínum í það að keyra farþega um úthverfi New York borgar. Frábær mynd sem hlaut Gullpálmann í Cannes og allir þurfa að sjá.
Korben Dallas - The Fifth Element
Vísindaskáldskapur varð fyrir valinu hjá Luc Besson í þessari frönsku mynd frá árinu 1997. Í myndinni sem gerist á 23. öld verður leigubílstjórinn Korben(Bruce Willis) ábyrgur fyrir afkomu jarðarinnar. Myndin, sem er á ensku, varð gífurlega vinsæl og allt til útgáfu The Intouchables árið 2011 var hún tekjuhæsta franska mynd allra tíma.
Johnny Cab - Total Recall
Total Recall ættu flestir að kannast við en þessi klassíska mynd með Arnold Schwarzenegger og Sharon Stone í aðalhlutverkum kom út árið 1990. Vélmennið og leigubílstjórinn Johnny Cab er leikinn af Robert Picardo í myndinni en er að lokum tortímt af karakter Schwarzenegger, Doug Quaid.
Daniel Morales - Taxi(1998)
Aftur komum við að vini okkar Luc Besson sem virðist alls ekki standa á sama um leigubílsstjóra. Luc skrifar þessa sígildu frönsku mynd sem leikstýrð er af Gérard Pires. Í myndinni gerist hinn snöggi pizzasendill Daniel(Samy Naceri) leigubílstjóri á sínum ógleymanlega Peugeot 406 bíl. Myndin átti mikilli velgengni að fagna og líkt og margir hafa framhaldsmyndir hennar orðið 4 talsins(Taxi 2 ,3 4, 5) einnig var framleidd bandarísk eftirgerð af myndinni sem við komum að hér að neðan.
Isabelle ‘Belle’ Williams - Taxi(2004)
Í Ameríku er það ekki Daniel heldur hin hæfileikaríka Belle sem leikin er af drottningunni Queen Latifah. Belle er góður bílstjóri og bifvélavirki í New York sem dreymir um að keppa í NASCAR. Hlutirnir vinda hratt upp á sig þegar fyrsti viðskiptavinur hennar í leigubílnum býður henni 100 dollara fyrir það eitt að komast á flugvöllinn á korteri sem hún auðvitað gerir með miklum hraðakstri. Síðar liggja leiðir hennar og lögreglumannsins Andy(Jimmy Fallon) saman og úr verður skemmtileg mynd.
Það væri svo erfitt að loka þessari grein án þess að minnast á ódauðlega persónu Fóstbræðra sem sennilega er ástsælasti leigubílstjóri íslenskrar sjónvarpssögu, Leigubílstjóra dauðans.
Þessi grein er unnin í samstarfi við Stuber
10. október - 11:00
101 Productions er framleiðslufyrirtæki sem einnig rekur útvarpsstöðina Útvarp 101. Ert þú með hugmynd? Sendu okkur línu á idea@101.live.
27. janúar - 10:30
Í nýjasta þætti Heimsenda ræðir Stefán Þór við hagfræðinginn Ólaf Kjaran Árnason um kapítalisma.
24. janúar - 13:00
Eruð þér límd við skjáinn? Er símtækið besti vinur þinn? Í nýjasta þætti Heimsenda er rætt um sítengingu og skilgreiningu hennar.
24. janúar - 12:30
Í hlaðvarpinu „Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið“ velta Annalísa Hermannsdóttir og Björk Guðmundsdóttir fyrir sér hegðun og hugarstarfi fullorðins fólks á heimspekilegan, sálfræðilegan en þó óvísindalegan hátt.
19. janúar - 14:40
Þáttastjórnendur Einhleyp, einmana og eirðarlaus eru mætt aftur í stúdíóið að jólafríi loknu.
17. janúar - 14:30
„Þetta er bara hreint og beint svefnherbergisdjamm, hoppandi á rúminu og syngjandi í hárburstann“ segir tónlistarkonan Salóme Katrín um lagið „The Other Side“ sem hún sendi frá sér í vikunni.