Hlusta

Heimsend­ir: Geim­verur

27. júlí, 2021 - 16:05

Heimsendir
Heimsendir

Við vitum að það eru milljarðar stjarna í Vetrarbrautinni. Við vitum að meðal þeirra leynist mikill fjöldi reikistjarna á borð við Jörðina okkar. Ef við göngum út frá því að líkt og á Jörðinni geti líf sprottið upp á öðrum reikistjörnum er ekki úr vegi að segja að það sé nokkuð líklegt að geimverur séu til. En hvar eru þær?

Að vana setur Heimsendir mögulegar sviðsmyndir framtíðarinnar, heimsendi, í kastljósið þar sem hinar ýmsu ályktanir um hið mögulega og ómögulega fá hljómgrunn. Í þætti vikunnar fær Stefán Þór leikkonuna Ellen M. Bæhrenz til liðs við sig til þess að ræða geimverur. Saman ræða þau nýjustu tíðindi í heimi fljúgandi furðuhluta; dularfull myndbönd frá höfuðstöðvum bandaríska varnarmálaráðuneytisins og mögulegar uppljóstranir frá svæði 51 ásamt því að fabúlera um mögulega tilvist geimvera; eru þær til, hvernig líta þær út, eru þær kannski bara ský – og hvað ef við erum alein í alheiminum?

Heimsendir er á dagskrá á Útvarpi 101 alla þriðjudaga kl. 16:00

Heimsendir
Heimsendir

Deila á samfélagsmiðlum

facebook Facebookfacebook Twitter

10. október - 11:00

Vel­komin til 101 Producti­ons

101 Productions er framleiðslufyrirtæki sem einnig rekur útvarpsstöðina Útvarp 101. Ert þú með hugmynd? Sendu okkur línu á idea@101.live.

27. janúar - 10:30

Kapí­tal­ism­inn í sögu­legu sam­hengi

Í nýjasta þætti Heimsenda ræðir Stefán Þór við hagfræðinginn Ólaf Kjaran Árnason um kapítalisma.

24. janúar - 13:00

Heimsend­ir: Síteng­ing

Eruð þér límd við skjáinn? Er símtækið besti vinur þinn? Í nýjasta þætti Heimsenda er rætt um sítengingu og skilgreiningu hennar.

24. janúar - 12:30

Þetta full­orðna fólk er svo skrýtið

Í hlaðvarpinu „Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið“ velta Annalísa Hermannsdóttir og Björk Guðmundsdóttir fyrir sér hegðun og hugarstarfi fullorðins fólks á heimspekilegan, sálfræðilegan en þó óvísindalegan hátt.

19. janúar - 14:40

Ein­hleyp, einmana og eirð­ar­laus: Live date

Þáttastjórnendur Einhleyp, einmana og eirðarlaus eru mætt aftur í stúdíóið að jólafríi loknu.

17. janúar - 14:30

„Hopp­andi á rúm­inu og syngj­andi í hár­burst­ann“

„Þetta er bara hreint og beint svefnherbergisdjamm, hoppandi á rúminu og syngjandi í hárburstann“ segir tónlistarkonan Salóme Katrín um lagið „The Other Side“ sem hún sendi frá sér í vikunni.

sjá allt