29. nóvember, 2021 - 12:15
Þáttastjórnendur Lélega Fantasy podcastsins fara yfir 14. leikviku, en hér er á nógu að taka. — er veldi Gumma Fel að falla?
Hér er æsispennandi þáttur á ferð sem er tekinn upp klukkutíma eftir síðasta leik umferðar 13. Það er jólaseason sem þýðir overtime hjá strákunum. En drama síðustu viku heldur áfram. Kemur í ljós að Ingi8 er ekki allur þar sem hann er séður. Var kraftaverk vikunnar í síðustu viku ef til vill ekki það besta fyrir okkar mann? Þetta, spurningar og splunkunýtt LIVE lag frumflutt í nýjasta þættinum af Lélega Fantasy Podcastinu.
Þú finnur Lélega Fantasy podcastið á instagram á: @lelegafantasy — Þá eru hlustendur jafnframt hvattir til þess að taka þátt í Fantasy-deild Lélega Fantasy podcastsins! Kóðinn er: 7gade1. Nýr þáttur alla miðvikudaga!
10. október - 11:00
101 Productions er framleiðslufyrirtæki sem einnig rekur útvarpsstöðina Útvarp 101. Ert þú með hugmynd? Sendu okkur línu á idea@101.live.
27. janúar - 10:30
Í nýjasta þætti Heimsenda ræðir Stefán Þór við hagfræðinginn Ólaf Kjaran Árnason um kapítalisma.
24. janúar - 13:00
Eruð þér límd við skjáinn? Er símtækið besti vinur þinn? Í nýjasta þætti Heimsenda er rætt um sítengingu og skilgreiningu hennar.
24. janúar - 12:30
Í hlaðvarpinu „Þetta fullorðna fólk er svo skrýtið“ velta Annalísa Hermannsdóttir og Björk Guðmundsdóttir fyrir sér hegðun og hugarstarfi fullorðins fólks á heimspekilegan, sálfræðilegan en þó óvísindalegan hátt.
19. janúar - 14:40
Þáttastjórnendur Einhleyp, einmana og eirðarlaus eru mætt aftur í stúdíóið að jólafríi loknu.
17. janúar - 14:30
„Þetta er bara hreint og beint svefnherbergisdjamm, hoppandi á rúminu og syngjandi í hárburstann“ segir tónlistarkonan Salóme Katrín um lagið „The Other Side“ sem hún sendi frá sér í vikunni.