12. nóvember, 2019 - 14:30
Háskaleikur spilaði upptöku frá Kerr Wilson frá Breakfast viðburðinum sem hann ásamt Vigdísi Erlu halda reglulega í íbúðinni sinni í Berlín.
2. september, 2019 - 13:00
Jónbjörn er einn duglegasti maðurinn í íslensku neðanjarðar hússenunni. Hann er nýfluttur heim frá Berlín og mætti beinustu leið í Háskaleik og tók svakalegt sett
27. maí, 2019 - 13:00
Jack The House Crew mætti með stútfulla tösku af oldschool jackin house plötum beint frá Japan og tók þrumu sett í Háskaleik
13. maí, 2019 - 12:15
Hinn fjallmyndalegi plötusnúður og gleðigjafi Símon fknhndsm kom í stúdíóið til Áskels og tók þrusu sett með glænýrri tónlist. Símon hefur verið áberandi á bak við spilarana á hinum ýmsu skemmtistöðum ásamt því að vera á bak við Funkþáttinn og Partý Zone.
6. maí, 2019 - 14:00
Sbeen Around var gestur Áskels í Háskaleik föstudagskvöldið 3. maí. Sbeen Around hefur verið virk plötusnælda í íslensku hússenunni síðustu ár og vakið athygli með mixseríurnar House Salad Music og MUG Melodies þar sem hún spilar djúpa og jackin' hústóna.
29. apríl, 2019 - 11:45
Ezeo var gestur Áskels í Háskaleik síðasta föstudag. Ezeo er maðurinn á bak við ViBES collective sem hafa gert góða hluti á klúbbum Reykjavíkur síðustu ár. Ezeo spilar djúpa og minimalíska tóna í hæsta gæðaflokki.