1. desember, 2020 - 15:30
Ragnheiður Kristjánsdóttir, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands, ræddi við þau Gunnar og Lóu í útvarpsþættinum Hverfið um bókina Konur sem kjósa. Bókin er skrifuð í tilefni þess að öld er liðin frá því að íslenskar konur hlutu kosningarétt.
1. desember, 2020 - 14:00
Salóme Katrín ræddi við þau Gunnar og Lóu í útvarpsþættinum Hverfið síðastliðinn fimmtudag. Þau ræddu plötuna hennar Water og hvernig tilfinning það er að gefa út sína fyrstu plötu.
30. nóvember, 2020 - 13:00
Þeir Muni, Ísidór og JóiPé voru gestir í þættinum Hverfið. Þeir sögðu frá nýju tónlistarverkefni og frumfluttu lagið Hata mig.
27. nóvember, 2020 - 17:00
Magnús Jóhann Ragnarsson gaf út plötuna Without Listening þann 13. nóvember síðastliðinn. K.óla semur tónverk fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Dóri DNA ræðir opnun Mikka Refs á Hverfisgötunni og Ari Jakobsson (ferrAri), ungur rappari, frumflutti lag af sinni fyrstu plötu, Örvænting sem kom út þann 20. nóvember.
23. nóvember, 2020 - 14:30
Nýr þáttur sem ber heitið Hverfið hefur hafið göngu sína á Útvarpi 101. Þáttastjórnendur eru Gunnar Ingi Jones og Lóa Björk Björnsdóttir. Í fyrsta þætti tóku þau viðtal við Alexöndru Baldursdóttur, gítarleikara Mammút.